EIGNABORG kynnir:
Vel skipulagt og vel viðhaldið sex herbergja 234,8 fm raðhús við Berugötu, Borgarnesi. Húsið er á tveimur hæðum með rúmgóðum (42 fm) innbyggðum bílskúr. Húsið er staðsett við sjávarkamb með einstöku útsýni út á Borgarfjörð og til Hafnarfjalls.
Nánari upplýsingar veitir Rakel Árnadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 895 8497 og [email protected]Eignin skiptist í; á neðri hæð
; forstofu, hol, svefnherbergi, þvottahús og bað auk geymslu. Innangengt í bílskúr frá holi á hæðinni. Á efri hæð; hol, stofa, borðstofa, eldhús, bað og 4 svefnherbergi.
Innra skipulag: Neðri hæð: Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi. Rúmgott íbúðarherbergi er inn af forstofu á neðri hæð (ca 12 fm). Úr forstofu er komið inn í hol með keramik flísum á gólfi. Úr holi er gengið inn í aðrar vistarverur eignarinnar ásamt stiga sem liggur upp á 2. hæð. Geymsla með hillum. Nýlega uppgert (2014) flísalagt baðherbergi með sturtu og ljósri vaskinnréttingu. Þvottahúsið er með skápum og ræstivaski, lakkað gólf. Skert lofthæð er á neðri næð, nema í bílskúr. Rafmagnstafla er í holi. Innangengt er úr holi í rúmgóðan 42 fm bílskúr með einangruðu lofti og loftræstingu. Í bílskúr er varmaskiptir fyrir húsið.
Efri hæð: Komið er upp á stigapall með parketlögðu gólfi. Á efri hæð er stofa með stórum glugga og svaladyrum. Stórar suður svalir með glæsilegu útsýni út á Borgarfjörð, borðstofa og eldhús með viðarinnréttingu. Á borðstofu og eldhúsi er korkdúkur á gólfi. Fjögur svefnherbergi eru á hæðinni, tvö rúmgóð og tvö minni. Dúkur á gólfum. Hjónaherbergi með viðarskápum á heilum vegg. Baðherbergið var uppgert 2016 og er með dökkum náttúruflísum á gólfi og hvítum flísalögðum veggjum. Ljós vaskinnrétting, baðkar og upphengt salerni.
Húsið hefur fengið gott viðhald. Baðherbergi á efri hæð endurnýjað fyrir 2 árum. Neysluvatnslagnir voru endurnýjaðar 2014 og settur upp varmaskiptir. Skipt um gler fyrir 4 árum á suðurhlið hússins. Skipt var um þakjárn fyrir 15 árum. Upprunalegt gler á norðurhlið. Suðurhlið hússins var máluð að utan í haust og hellulagt fyrir framan hús.
Rúmgott og vel skipulagt raðhús við rólega götu í Borgarnesi með rúmgóðum bílskúr og glæsilegu útsýni út á Borgarfjörð
Nánari upplýsingar veitir Rakel Árnadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 895 8497 og [email protected]
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati. 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingargjald er 2000,- kr af hverju skjali.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar
4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.